Handknattleiksárið 1954-55
Handknattleiksárið 1954-55 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1954 og lauk sumarið 1955. Valsmenn urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki en KR sigraði kvennaflokki. Íslendingar léku enga landsleiki á tímabilinu.
Karlaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Valsmenn urðu Íslandsmeistarar. Keppt var í sex liða deild með einfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Valur | 8 |
Ármann | 6 |
Þróttur R. | 6 |
Fram | 6 |
KR | 3 |
ÍR | 2 |
ÍR-ingar höfnuðu í neðsta sæti og hefðu átt að falla. Árið eftir var hins vegar ákveðið að keppa í einni níu liða deild svo þeir héldu sæti sínu.
2. deild
[breyta | breyta frumkóða]Afturelding fór með sigur af hólmi og tryggði sér sæti í 1. deild. Keppt var í þriggja liða deild með einfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Afturelding | 4 |
FH | 2 |
Víkingur | 0 |
Kvennaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]KR-ingar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna í fyrsta sinn. Leikin var einföld umferð í sex liða deild.
Félag | Stig |
---|---|
KR | 9 |
Ármann | 8 |
Fram | 5 |
FH | 4 |
Þróttur | 2 |
Valur | 2 |
Landslið
[breyta | breyta frumkóða]Engir formlegir landsleikir fóru fram á tímabilinu.