Handknattleiksárið 1952-53
Handknattleiksárið 1952-53 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1952 og lauk sumarið 1953. Ármenningar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki en Fram sigraði kvennaflokki. Íslendingar léku enga landsleiki á tímabilinu.
Karlaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Ármenningar urðu Íslandsmeistarar á markatölu. Keppt var í sex liða deild með einfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Ármann | 8 |
Valur | 8 |
ÍR | 6 |
Víkingur | 4 |
Fram | 4 |
Afturelding | 0 |
Afturelding féll í 2. deild.
2. deild
[breyta | breyta frumkóða]KR fór með sigur af hólmi og tryggði sér sæti í 1. deild. Keppt var í þriggja liða deild með einfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
KR | 4 |
Þróttur | 2 |
FH | 0 |
Kvennaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Framarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna. Sjö lið tóku þátt í mótinu og kepptu þau í tveimur riðlum með einfaldri umferð.
A-riðill
Ármann sigraði í A-riðli, Valsstúlkur höfnuðu í öðru sæti. Fjögur lið kepptu í riðlinum.
B-riðill
Félag | Stig |
---|---|
Fram | 4 |
FH | 2 |
KR | 0 |
Úrslitaleikur
- Fram - Ármann 6:2
Landslið
[breyta | breyta frumkóða]Engir formlegir landsleikir fóru fram á tímabilinu.