Höfuðátt
Útlit
Höfuðátt er ein af aðaláttunum fjórum[1], norður, suður, vestur og austur, þær samsvara eftirfarandi gráðum á áttavita: norður 0°, austur: 90°, suður: 180°, vestur: 270°, hinar áttirnar sem eiga sér nafn eru milliáttirnar.
Milliáttir
[breyta | breyta frumkóða]Milliáttir eru áttaheiti, sem liggja á milli höfuðáttanna fjögurra. Í hefðbundinni siglingafræði er níutíu gráðu bilum milli höfuðáttana skipt hverju um sig í 8 jafna hluta með sjö milliáttum og verða þá 11,25° í hverjum hluta. Milliáttirnar heita nöfnum, sem dregin eru af heitum höfuðáttanna, svo sem hér greinir:
Frá norðri til austurs | Frá austri til suðurs | Frá suðri til vesturs | Frá vestri til norðurs |
---|---|---|---|
norður (höfuðátt) | austur (höfuðátt) | suður (höfuðátt) | vestur (höfuðátt) |
norður að austri | austur að suðri | suður að vestri | vestur að norðri |
norðnorðaustur | austsuðaustur | suðsuðvestur | vestnorðvestur |
norðaustur að norðri | suðaustur að austri | suðvestur að suðri | norðvestur að vestri |
norðaustur | suðaustur | suðvestur | norðvestur |
norðaustur að austri | suðaustur að suðri | suðvestur að vestri | norðvestur að norðri |
austnorðaustur | suðsuðaustur | vestsuðvestur | norðnorðvestur |
austur að norðri | suður að austri | vestur að suðri | norður að vestri |
Neðanmálsgreinar
[breyta | breyta frumkóða]- ^ Miðjan er álitin fimmta áttin í hefðbundinni kínverskri menningu.