Háskóli
Háskóli er menntastofnun þar sem fer fram æðri menntun og vísindalegar rannsóknir. Námsgráður sem veittar eru í háskólum eru í grófum dráttum á þremur stigum: bakkalárstigi (til dæmis B.A. – og B.S.-gráður eða sambærilegar gráður sem eru gráður veittar að loknu grunnnámi); kandídatsstigi (magister gráður sem eru veittar að loknu eins eða tveggja ára framhaldsnámi); og að lokum doktorsstigi (doktorsgráður sem veittar eru að loknu umfangsmiklu rannsóknatengdu framhaldsnámi en doktorsgráða er æðsta námsgráða sem veitt er á Íslandi).
- Kennaraháskóli er háskóli sem hefur það hlutverk að mennta kennara fyrir grunn- og framhaldsskólastig.
- Listaháskóli er skóli á háskólastigi sem býður einkum upp á menntun í listgreinum á borð við myndlist, leiklist og tónlist.
- Tækniháskóli er háskóli sem útskrifar aðallega tæknifræðinga og verkfræðinga.
- Viðskiptaháskóli er skóli sem undirbýr nemendur aðallega fyrir starf í viðskiptalífinu.
Íslensk og erlend hugtakanotkun
[breyta | breyta frumkóða]Íslenska orðið „háskóli“ er notað jafnt um alla skóla á háskólastigi. Á öðrum tungumálum er oft gerður greinarmunur annars vegar á þeim skólum á háskólastigi þar sem einungis eða að langmestu leyti fer fram kennsla á grunnstigi eða á afar takmörkuðu sviði (svo sem tæknivísindum eða viðskiptum) og hins vegar á skólum þar sem kennsla fer fram í flestum greinum vísinda, bæði á grunn- og framhaldsstigi og rannsóknarstarfsemi er öllu umfangsmeiri.
Á ensku er til að mynda gerður greinarmunur á „college“ og „university“, þar sem „college“ er skóli á háskólastigi, sem veitir námsgráður einkum á grunnstigi, ef til vill á takmörkuðu sviði (samanber til dæmis viðskiptaháskóla eða „business college“) en orðið „university“ er notað um háskóla þar sem kenndar eru allar helstu greinar vísinda, veittar eru námsgráður á framhaldsstigi og rannsóknarstarfsemi er venjulega töluvert meiri en í þeim skólum sem teljast vera „college“.
Sams konar greinarmunur endurspeglast meðal annars í norsku orðunum „høyskole“ („høgskole“ á nýnorsku) og „universitet“, dönsku orðunum „professionshøjskole“ og „universitet“ og sænsku orðunum „högskola“ og „universitet“.
Af þessum sökum hefur verið lagt til að kalla íslenska háskóla sem samsvara „university“ eða „universitet“ rannsóknarháskóla en láta öðrum skólum eftir orðið „háskóli“. Háskóli Íslands væri þá dæmi um rannsóknaháskóla en Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst væru venjulegir háskólar.