Fara í innihald

Georgíj Zhúkov

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Georgíj Zhúkov
Георгий Жуков
Zhúkov árið 1944.
Varnarmálaráðherra Sovétríkjanna
Í embætti
9. febrúar 1955 – 26. október 1957
ForsætisráðherraNíkolaj Búlganín
ForveriNíkolaj Búlganín
EftirmaðurRodíon Malínovskíj
Persónulegar upplýsingar
Fæddur1. desember 1896(1896-12-01)
Strelkovka, rússneska keisaradæminu
Látinn18. júní 1974 (77 ára) Moskvu, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum
StjórnmálaflokkurKommúnistaflokkur Sovétríkjanna (1917–1957)
MakiAleksandra Zúíkova ​(g. 1953; sk. 1965)​
Galína Semjonova (g. 1965; d.1973)
Börn4
StarfHermaður
Undirskrift

Georgíj Konstantínovítsj Zhúkov (1. desember 189618. júní 1974) var sovéskur hershöfðingi. Zhúkov var einn mikilvægasti hershöfðingi Sovétmanna í seinni heimsstyrjöldinni og tók hann þátt í mörgum af helstu orrustunum á austurvígstöðvunum; meðal annars orrustunni um Stalíngrad, orrustunni um Leníngrad, orrustunni um Kúrsk og aðal þátt allra orrustunni um Berlín sem Sovétmenn yfirtóku.

Í ágúst 1942 var Zhúkov sendur til Stalíngrad til að stjórna vörn Sovétmanna gegn Þjóðverjum. Í Stalíngrad skipulagði Zhúkov Úranus-aðgerðina sem hrint var í framkvæmd í nóvember 1942. Aðgerðin fól það í sér að sjötti her Þjóðverja, undir stjórn Friedrichs Paulus var umkringdur í Stalíngrad, sem leiddi til þess að sjötti herinn gafst upp í febrúar 1943 og Sovétmenn unnu borgina á sitt vald.

Zhúkov átti einnig þátt í að brjóta á bak aftur umsátrið um Leníngrad og hann var yfirmaður herafla Sovétmanna í orrustunni við Kursk árið 1943, þar sem Sovétmenn stöðvuðu síðustu sókn Þjóðverja á austurvígstöðvunum. Zhúkov tók þátt í sókn Sovétmanna til vesturs allt til stríðsloka og var hann viðstaddur uppgjöf Þjóðverja í Berlín í maí 1945.

Eftir stríðið var Zhúkov ráðherra varnarmála um tíma, undir stjórn Níkíta Khrústsjov, en féll svo í ónáð og var þvingaður til að setjast í helgan stein.

  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.