Benedikt Gíslason
Benedikt Gíslason (f. 1974)[1] er íslenskur verkfræðingur og hefur verið bankastjóri Arion banka frá júlí 2019.
Benedikt lauk námi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1998[1] og hefur starfað víða í fjármálageiranum. Hann hefur m.a. starfað hjá Fjárfestingabanka atvinnulífsins (FBA) og síðar Íslandsbanka. Hann gegndi stjórnunarstörfum hjá Straumi-Burðarás og var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá FL Group og framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs MP banka.[2]
Benedikt var um tíma aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og síðar efnahagsráðgjafi hans. Bendedikt hefur einnig sinnt stundakennslu við Verslunarskóla Íslands, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.[3]
Benedikt tók við starfi bankastjóra Arion banka í júlí 2019. Nokkru síðar var tilkynnt um viðamiklar skipulagsbreytingar í bankanum og var m.a. um 100 manns sagt upp störfum í lok september.[4]
Benedikt er kvæntur Ragnheiði Ástu Guðnadóttur næringarfræðingi og eiga þau fjögur börn.[3]
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ 1,0 1,1 Arionbanki.is, „Frambjóðendur til stjórnar“ (skoðað 28. september 2019)
- ↑ Ruv.is, „Benedikt nýr bankastjóri Arion banka“ (skoðað 28. september 2019)
- ↑ 3,0 3,1 Visir.is, „Benedikt ráðinn aðstoðarmaður fjármálaráðherra“ (skoðað 28. september 2019)
- ↑ Mbl.is, „Hundrað sagt upp hjá Arion banka“ (skoðað 28. september 2019)