Bæjarstaðaskógur
Bæjarstaðaskógur er birkiskógur í Morsárdal, vestan við Skaftafell í suðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Skógurinn er í vesturhlíð dalsins og snýr móti suðaustri. Hann var girtur af árið 1935, alls 22 ha, sem voru að hálfu vaxnir skógi. Uppblástur og beit hafði farið illa með skóginn. Skógræktarfélag Íslands sá um framkvæmdir en frjáls samskot stóðu undir kostnaði. Bæjarstaðarskógur er talinn einhver þróttmesti birkiskógur hérlendis með allt að 12 m háum trjám, sem eru beinvaxnari en gerist yfirleitt með íslenskt birki. Þar er einnig eitthvað af reynitrjám.
Bæjarstaðaskógur er talinn vera svo nefndur því hugsanlega var bær þar sem hét Jökulfell eins og getið er í máldögum frá 14. öld. Rústir bæjarins ku hafa sést allt til aldamóta 1700.
Gönguleið er að skóginum og hefst hún í Skaftafelli.