469
Útlit
Árþúsund: | 1. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Árið 469 (CDLXIX í rómverskum tölum)
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Þjóðrekur, (sem síðar varð konungur Austgota (Ostrogota) þá 15 ára, snýr aftur til ættmenna sinna í Pannóníu, eftir að hafa verið gísl frá árinu 461 við austrómversku hirðina í Konstantínópel.
- Evrik, konungur Vestgota (Vísigota), dregur ríki sitt í Hispaníu úr sambandi við Vestrómverska keisaradæmið. Fram að því höfðu Vestrómverjar að nafninu til haft yfirráð yfir Vestgotum. Julius Nepos viðurkennir að lokum sjálfstæði Vestgota árið 475.
- Korsíka fellur undir yfirráð Vandala.
- Vandalar gera innrás í Grikkland (sem þá var undir yfirráðum Austrómverska keisaradæmisins) en eru sigraðir og reknir til baka. Í hefndarskyni myrða Vandalar um 500 gísla á undanhaldinu.