Fara í innihald

Óðinn Valdimarsson og K.K. sextettinn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá 45-2006)
Óðinn Valdimarsson og K.K. sextettinn
Bakhlið
45-2006
FlytjandiÓðinn Valdimarsson og K.K. sextettinn
Gefin út1960
StefnaDægurlög
ÚtgefandiÍslenzkir tónar

Óðinn Valdimarsson og K.K. sextettinn er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1960. Á henni flytja Óðinn Valdimarsson, K.K. sextettinn og söngkvartett tvö lög. Flytjendur eru auk Óðins, Elly Vilhjálms, söngur, Jón Páll Bjarnason, gítar, söngur, Jón Sigurðsson, kontrabassi, söngur, Þórarinn Ólafsson, píanó, söngur, Árni Scheving, víbrafónn, Guðmundur Steingrímsson, trommur og hljómsveitarstjórinn Kristján Kristjánsson, slagverk og söngur. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló.

  1. Í kjallaranum - Lag og texti: Jón Sigurðsson - Hljóðdæmi
  2. Saga farmannsins - Lag - texti: Robbins - Jón Sigurðsson - Hljóðdæmi