Þjappað mengi
Útlit
Þjappað mengi er mengi í grannrúmi, sem hefur ákveðinn, mikilvægan eiginleika, ekki síst í firðrúmum.
Mengi kallast þjappað ef að það uppfyllir annað hvort:
- Sérhver runa í menginu á sér hlutrunu sem er samleitin í menginu. (Bolzano-Weierstrass setningin)
- Sérhver opin þakning mengisins á sér endanlega hlutþakningu. (Heine-Borel skilyrðið)
Þessi tvö skilyrði eru jafngild í firðrúmi en seinna skilyrðið er notað sem skilgreining á þjöppuðu mengi í grannrúmi. Jafnframt leiða þau af sér að mengið er lokað og takmarkað. Í er það nægjanlegt að mengi sé lokað og takmarkað til þess að það sé þjappað, en fyrir almenn firðrúm er það fremur sjaldgæft.