Wendell Clausen
Útlit
(Endurbeint frá Wendell Vernon Clausen)
Wendell Vernon Clausen (2. apríl 1923 í Oregon í Bandaríkjunum – 12. október 2006) var bandarískur fornfræðingur og textafræðingur og prófessor í latínu og latneskum bókmenntum á Harvard-háskóla.
Hann nam enskar bókmenntir og latínu til B.A.-prófs í Washington-háskóla. Þaðan hélt hann til Chicago-háskóla og lauk þaðan doktorsprófi þremur árum síðar. Hann kenndi fornfræði við Amherst-háskóla (1948-1959) og síðar á Harvard þar sem hann var prófessor í grísku og latínu (1959-1982), síðan Victor S. Thomas-prófessor í grísku og latínu (1982-1988) og að lokum Pope-prófessor í latínu og latneskum bókmenntum (1988-1993).
Hann var frumkvöðull í rannsóknum á tengslunum milli latnesks kveðskapar og grísks kveðskapar frá helleníska tímanum
Helstu rit
[breyta | breyta frumkóða]Bækur
[breyta | breyta frumkóða]- Vergil's Aeneid: Decorum, Allusion and Ideology (2002)
- Virgil's Aeneid and the tradition of Hellenistic poetry (1987)
- Callimachus and Latin poetry (1964)
- Plutarch (1964)
Ritstýrðar útgáfur og skýringarrit
[breyta | breyta frumkóða]- Virgil, Eclogues'' (1994)
- Appendix Vergiliana (1966)
- A. Persi Flacci et D. Iuni Iuvenalis saturae (1959)
- Persius, Saturarum liber (1956)
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Richard Tarrant, „Classicist, philologist 'with a literary sensibility' Clausen dies at 83“ Geymt 28 ágúst 2008 í Wayback Machine