Vindmylla
Útlit
Vindmylla er mylla sem er knúin áfram af vindinum með blöðum sem fest eru á snúningsás. Vindmyllur hafa verið notaðar til að mala korn og dæla vatni frá miðöldum fram á okkar daga. Nú til dags er algengt að nota vind til framleiðslu rafmagns með vindrafölum.
Vindmyllur á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Um tíma voru tvær vindmyllur í Reykjavík. [1] Önnur þeirra var Hollenska myllan. Vindmylla stendur ennþá í eynni Vigur í Ísafjarðardjúpi.
Raforka
[breyta | breyta frumkóða]Tvær vindmyllur sem búa til raforku voru reistar árið 2013 upp af Búrfelli í Þjórsárdal. Það er tilraunaverkefni Landsvirkjunar. [2] Vindmyllur eru einnig tvær í Þykkvabæ og ein í Leirársveit. [3]
Áform eru uppi að reisa vindmyllugarð í Dalabyggð[4].
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Vindmyllurnar settu svip á bæinn, Dagblaðið, Í kvosinni (13.12.1977), Blaðsíða 24
- ↑ Vindmyllur Landsvirkjunar gangsettarMbl, skoðað 15. ágúst, 2019.
- ↑ Óvissa um vindmylluvæðingu Rúv, skoðað 15. ágúst 2019.
- ↑ 5 til 20 milljarða vindmyllugarður Rúv, skoðað 15 ágúst, 2019.
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Vindmylla.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist vindmyllum.