Varanus auffenbergi
Varanus auffenbergi | ||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||||||||
Gögn vantar
(IUCN)
| ||||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||||
Varanus auffenbergi Sprackland, 1999[1] | ||||||||||||||||||||
Varanus auffenbergi er tegund í eðluættinni frýnur[2]. Það var aðeins árið 1999 þegar Sprackland lýsti frýnuna sem eigin tegund.[3] Frýnan Varanus auffenbergi var áður talin undirtegund Varanus timorensis roti, en nafn hennar vísar til eyjunnar Roti, þaðan sem hún kemur. Samkvæmt Böhme á enn eftir að sýna sérstakan tegundarmun á Varanus timorensis.[4] Nafnið auffenbergi er til heiðurs bandaríska vísindamannsins Walter Auffenberg.[5]
Útlit
[breyta | breyta frumkóða]Lengd tegundarinnar án hala er 205 til 216 mm.[6] Heildarlengd V. auffenbergi er u.þ.b. 60 cm hjá fullorðnu karldýri, kvendýrin eru venjulega aðeins minni.
Efri hliðin er dökkgrá sem er þakið óreglulega dreifðu mynstri (e. ocelli). Í þessum mynstrum er venjulega blettur sem er breytilegur á milli blárrar og grárrar, milli mynstrunum eru dýrin flekkótt frá ljósrauðum til ljósbrúns.
Varanus auffenbergi er með svipað útlit og V. timorensis með nokkurri aðgreiningu á litnum og mynstrunum. Varanus auffenbergi hefur blágrátt mynstur en V. timorensis hefur kremlitað mynstur. [7][8]
Heimkynni
[breyta | breyta frumkóða]Varanus auffenbergi er aðeins landlæg á indónesísku eyjunni Roti.[2][7][8]
Hegðun
[breyta | breyta frumkóða]Í náttúrunni hafa sést Varanus auffenbergi klifra upp pálmatrésstofn og sólbaða sig í trjákrónunni, en V. timorensis hafa aldrei sést í pálmatrjákrónunni þrátt fyrir hann hafa líka sést á pálmatrésstofn.[2] Frýnur Varanus auffenbergi eru rólegar og miðað við aðrar frýnur.[7][8]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „ITIS.gov“. Sótt 15. apríl 2011.
- ↑ 2,0 2,1 2,2 del Canto, Raul (2007): Notes on the Occurrence of Varanus auffenbergi on Roti Island. In: Biawak 1(1). pp. 24–25. (Online)
- ↑ Sprackland, Robert George (1999): A new species of monitor (Squamata: Varanidae) from Indonesia. Reptile Hobbyist, 4(6), 20-27. (Online)
- ↑ Böhme, Wolfgang (2003): Checklist of the living monitor lizards of the world (family Varanidae). Zool. Verh. Leiden 341. (Online)
- ↑ Beolens, Bo; Watkins, Michael; Grayson, Michael (2011). The Eponym Dictionary of Reptiles. Baltimore, Maryland: Johns Hopkins University Press. xiii + 296 pp. ISBN 978-1-4214-0135-5. (Varanus auffenbergi, p. 12).
- ↑ Meiri, Shai (2008): Evolution and ecology of lizard body sizes. In: Global Ecology and Biogeography, 17, pp. 724–734. (Online Geymt 9 júlí 2020 í Wayback Machine)
- ↑ 7,0 7,1 7,2 monitor-lizards.net Geymt 19 maí 2010 í Wayback Machine (Retrieved Feb. 10, 2010.)
- ↑ 8,0 8,1 8,2 „Reptiliana.wordpress.com“. (Retrieved Feb. 10, 2010.)
Fyrirmynd greinarinnar var „Auffenbergs_Waran“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt 1. apríl 2021.
Fyrirmynd greinarinnar var „Peacock_monitor“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 1. apríl 2021.
Veftenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Varanus auffenbergi í The Reptile Database