Urumqi
Ürümqi
| |
---|---|
Hnit: 43°49′21″N 87°36′45″A / 43.82250°N 87.61250°A | |
Land | Kína |
Hérað | Xinjiang |
Borgarhluti | 8 sýslueiningar |
Stjórnarfar | |
• Flokksritari | Zhang Zhu |
• Borgarstjóri | Yahefu Paidula |
Flatarmál | |
• Samtals | 14.577 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 860 m |
Mannfjöldi (2020) | |
• Samtals | 4.054.000 |
• Þéttleiki | 280/km2 |
Póstnúmer | 830000 |
Tímabelti | UTC+08:00 |
Vefsíða | urumqi |
Urumqi (eða Urumchi) (kínverska: 乌鲁木齐; rómönskun: Wūlǔmùqí; úígúrska ئۈرۈمچى) (stundum stytt sem „Wushi“ kínverska: 乌市; ; rómönskun: Wūshì), er höfuðborg sjálfstjórnarhéraðsins Xinjiang í norðvesturhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Hún er staðsett í 1.000 metra hæð yfir sjávarmáli í norðanverðum miðhluta Xinjiang héraðs, í frjóu belti gróðurvinjar meðfram norðurhlíð Tianshan-fjalla á báðum bökkum Urumqi fljóts. Borgin svæðismiðstöð fyrir lesta-, vega- og flugsamgöngur. Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Urumqi um 5,3 milljónir manna.
Urumqi var mikilvægur áningarstaður við Silkveginn á tíma Tangveldisins (618-907) í Kína og þróaði orðspor sitt sem leiðandi menningar- og verslunarmiðstöð Tjingveldisins á 19. öld. Nafnið Urumqi er dregið úr á mongólsku og þýðir „fallega engi“.
Urumqi þróast hratt síðan á tíunda áratug síðustu aldar og þjónar nú sem svæðisbundin miðstöð samgangna, menningar, stjórnmála og viðskipta í Xinjiang héraði. Um alþjóðaflugvöll borgarinnar fóru 23 milljónir farþega árið 2018.
Urumqi er næststærsta borgin í norðvesturhluta Kína, sem og sú stærsta í Mið-Asíu miðað við íbúafjölda. Menningarlega er borgin talin úígúrsk borg. Borgarbúar eru þó langflestir Han-kínverjar (75 prósent árið 2010), en Úígúrar (um 12 prósent) og kasakstanar (um 2 prósent) eru langflestir múslimar. Úígúrska þjóðin talar tungu af tyrkneskum stofni, sem er alls óskyld kínversku.
Lýðfræði
[breyta | breyta frumkóða]Árið 2020 þegar síðasta manntal var gert í Kína, var íbúafjöldi borgarkjarna Urumqi 3.750.000 en íbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar var 4.054.369.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Kínversk vefsíða borgarstjórnar Urumqi Geymt 13 maí 2020 í Wayback Machine. Inniheldur ýmsar upplýsingar um t.d. fréttir, skipulag.
- Ensk vefsíða Encyclopaedia Britannica um Urumqi borg.