Jarðkeppur
Jarðkeppur | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tegundir | ||||||||||||
Tuber melanosporum |
Jarðkeppur eða truffla er heiti á flokki ætisveppa af ættkvíslinni Tuber. Jarðkeppur myndar harðan kúlulaga svepp neðanjarðar um 5 til 40 sm undir yfirborðinu. Þeir lifa samlífi með rótum trjáa, einkum eikartrjáa. Jarðkeppir eru mjög bragðmiklir og hafa einkennandi bragð sem gerir þá mjög eftirsótta í matargerð. Langmest af heimsframleiðslu á jarðkeppum kemur frá Evrópu, einkum Frakklandi, Spáni og Ítalíu.
Svartkeppur (eða kúlusveppur) (Tuber melanosporum) er trufflutegund sem er oft tengd Périgord-héraðinu í Frakklandi og er að finna víða þar sem vex eik.
Sumartryffill (Tuber aestivum) er á válista yfir tegundir í útrýmingarhættu í Danmörku. Á Norðurlöndunum er mælst til þess að hann sé aðeins seldur ef hann kemur frá landi þar sem hann er ekki á válista.[1]
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Jørn Gry, Christer Andersson, Lulu Krüger, Birgitte Lyrån, Laila Jensvoll, Niina Matilainen, Annika Nurttila, Grímur Olafsson og Bente Fabech (2012). Ætisveppir - Norrænn spurningalisti, ásamt leiðbeiningalistum yfir ætisveppi sem má selja á markaði. Ætlað matvælafyrirtækjum, verslunum og opinberu matvælaeftirliti. Norræna Ráðherranefndin. ISBN 978-92-893-2381-9