Fara í innihald

Músarrindill

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Troglodytes troglodytes)
Músarrindill
Músarrindill
Músarrindill
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Fuglar (Aves)
Ættbálkur: Spörfuglar (Passeriformes)
Ætt: Rindlar (Troglodytidae)
Ættkvísl: Troglodytes
Tegund:
T. troglodytes

Tvínefni
Troglodytes troglodytes
Linnaeus, 1758
Samheiti

Olbiorchilus hiemalis

Músarrindill.
Troglodytes troglodytes
Cuculus canorus canorus + Troglodytes troglodytes

Músarrindill (fræðiheiti Troglodytes troglodytes) er mjög lítill spörfugl af ætt rindla og var lengi vel minnstur allra fugla á Íslandi, áður en Glókollur nam land.

Lifnaðarhættir

[breyta | breyta frumkóða]

Músarrindill er fjölkvænisfugl og notar karlfuglinn söngrödd sína til að laða til sín kvenfugla. Hann kemur á varpstöðvar á undan kvenfugli og helgar sér stórt varpsetur. Hann er þekktur fyrir langa og flókna söngva. Músarrindill er staðfugl á Íslandi en færir sig um set á veturna og eru þá nálægt sjó eða lækjum þar sem auðvelt er um skjól og fæðu.

Söngur músarrindils:

Músarrindillinn verpir víða í birkiskógum, grónum hraunum og stundum í urðum nálægt vatni. Karlfuglinn byggir nokkur hreiður, 6 - 7 í Evrópu en færri í Ameríku. Hann byggir hreiðrin, sem er kúluhreiður, með litlu opi á hliðinni. Hreiðrið fellur vel inn í umhverfið. Karlfuglinn vefur hreiðrið og oftast býr hann til fleiri en eitt hreiður en fóðrar ekki að innan fyrr en kvenfugl hefur valið hreiðrið. Þá hjálpast fuglarnir að því að fóðra hreiðrið. Kvenfuglinn liggur á eggjunum og báðir fuglarnir fær svo ungunum fæðu.

  Þessi fuglagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.