Fara í innihald

Duld (kvikmynd)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá The Shining (kvikmynd))
Duld
The Shining
LeikstjóriStanley Kubrick
HandritshöfundurStanley Kubrick
Diane Johnson
Byggt áDuld eftir Stephen King
FramleiðandiStanley Kubrick
LeikararJack Nicholson
Shelley Duvall
Danny Lloyd
Scatman Crothers
DreifiaðiliWarner Bros.
Frumsýning23. maí 1980
LengdFáni Bandaríkjana 143 mín.
LandFáni Bandaríkjana Fáni Bretlands
TungumálEnska
Aldurstakmark16
Ráðstöfunarfé$15,000,000

Duld (enska: The Shining) er hryllingsmynd frá árinu 1980. Myndin er leikstýrð af Stanley Kubrick og styðst við samnefnda skáldsögu eftir Stephen King, sem kom út árið 1977.

Faðirinn (Jack Nicholson) er rithöfundur með ritstíflu sem gerist umsjónarmaður glæsilegs fjallahótels, og með honum koma kona hans (Shelley Duvall) og sonur. Áður en vetrardvöl þeirra á hótelinu hefst segir eigandi staðarins föðurnum sögu um fyrrverandi umsjónarmanninn sem vann þar nokkrum árum áður og gekk gjörsamlega af göflunum (vegna einhverra dularfullra ástæðna) og framdi sjálfsmorð (eftir að hafa myrt konu sína og tvíburadætur sínar tvær). Föðurnum er þó sama og tekur vinnuna. Góðhjartaður svartur maður sem vinnur sem kokkur hótelsins kynnist litla syninum og segir honum að þeir eigi sameinlegt yfirnáttúrulegan hæfileika sem heitir Shining (skyggnigáfa), sem gerir það nefnilega að verkum að þeir geta deilt hugsunum sínum hvor með öðrum án þess að mæla nokkurt orð, auk þess að geta séð ýmislegt ósjáanlegt o.þ.h. Einnig bannar svarti maðurinn stráknum að fara í eitt herbergi (en hann fer samt á endanum inn í það).

Faðirinn, sem var einu sinni áfengissjúklingur og beitti því son sinn ofbeldi, dettur í það vegna innilokunarkenndar og kynnist draug bresks þjóns sem sannfærir hann um það að það þurfi að leiðrétta fjölskylduna. Það kemur varla á óvart að ekki skuli líða á löngu þar til allt fer úrskeiðis vegna þessara óhugnanlegu hluta.

  Þessi kvikmyndagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.