Telómerasi
Telómerasi er lífhvati sem hefur áhrif á litningsenda við frumuskiptingar. Litningar í frumukjörnum bera erfðaupplýsingar. Litningaendar styttast í hvert skipti sem fruma skiptir sér og eftir ákveðinn fjölda skiptinga eru endarnir orðnir svo stuttir að fruman getur ekki skipt sér lengur. Það er nefnt frumuöldrun. Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði 2009 voru veitt til þriggja vísindamanna Elizabeth Blackburn, Carol W. Greider og Jack W. Szostak fyrir uppgötvun á byggingu og starfsemi litningaenda og ensímsins telómerasa.[1] Fruma deyr þegar litningarnir eru orðnir of stuttir. Í nokkrum tegundum frumna, meðal annars kynfrumum og krabbameinsfrumum, er ensím (lífefnahvati) sem byggir upp hulsur á enda litninga jafnóðum og þær eyðast. Þetta ensim er telómerasi.[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Sigurður Ingvarsson, „Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði 2009: Litningaendar og lífhvatinn telómerasi“, Tímarit um raunvísindi og stærðfræði 6. árg. 1. hefti 2009.
- ↑ Magnús Jóhannsson. „Hvað er telómerasi og hver eru áhrif hans á öldrun?“. Vísindavefurinn 5.1.2001. http://visindavefur.is/?id=1263. (Skoðað 15.8.2013).