Tónasystur - Bergmál
Útlit
Tónasystur | |
---|---|
IM 90 | |
Flytjandi | Tónasystur, tríó Jan Morávek |
Gefin út | 1955 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Tónasystur er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1955. Á henni syngur sönghópurinn Tónasystur lögin Bergmál og Unnusta sjómannsins. Tríó Jan Morávek leikur undir en auk Jan sem lék á píanó, lék Eyþór Þorláksson á gítar og Erwin Koeppen á bassa. Tónasystur eru þær Eygló Viktorsdóttir, Hulda Viktorsdóttir, Sigríður Pétursdóttir, Sigríður Þóra Bjarnadóttir, Þórdís Stefánsdóttir og Þórunn Pálsdóttir. Útsetning: Jan Morávek. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Bergmál - Lag - texti: Þórunn Franz - Jenni Jónsson - ⓘ
- Unnusta sjómannsins - Lag - texti: Sænskur sjómannsvals - Freysteinn Gunnarsson