Sveinsstaðaafrétt
Sveinsstaðaafrétt nefnist afrétt Svarfdælinga. Hún er innst í Skíðadal og afdölum hans þar. Bæði sauðfé og hestar og jafnvel geldneyti ganga þar til beitar að sumarlagi. Ólíkt því sem gerist á Suðurlandi og víðar er nafnorðið afrétt í kvenkyni í munni Svarfdælinga. Afréttin dregur nafn sitt af eyðibýlinu Sveinsstöðum, sem var lengi innsti bær í dalnum ásamt með hjáleigunni Stafni.
Sveinsstaðaafrétt er smöluð á hverju hausti af Gangnamannafélaginu svokallaða. Yfirleitt er farið þrisvar, þ.e. í fyrstu og aðrar göngur og eftirleit. Ein eða tvær vikur líða venjulega milli fyrstu og annarra gangna. Farið er í fyrstu göngur í byrjun september. Það er mun fyrr en áður var, þegar farið var í göngur í kring um 20. september. Í eftirleit er farið eftir ástæðum seint að hausti. Sveinsstaðaafrétt skiptist í nokkur gangnasvæði. Þau eru Litlidalur, Almenningur, Austurtungur, Vesturtungur (Austur- og Vestur-Stafnstungur), Vesturárdalur og Krosshólsfjall. Á síðustu árum hafa Holárdalur, Gljúfurárdalur og Kóngsstaðadalur bæst við umdæmi Gangnamannafélagsins, en þessi svæði tilheyra þó ekki hinni eiginlegu Sveinsstaðaafrétt.
Göngur
[breyta | breyta frumkóða]Göngur taka ekki langan tíma miðað við það sem sums staðar er. Á móti kemur að fjöllin eru brött og há, sum yfir 1400 m. Á fyrsta degi taka menn til nesti og koma hrossum fram í Skíðadal. Á öðrum degi er smalað og féð rekið í girðingu við Stekkjarhús sem er sæluhús gangnamanna. Það stendur þar sem áður var stekkur frá Krosshóli. Þar er einnig hesthús. Á þriðja degi er safnið rekið á Tungurétt, skilarétt Svarfdælinga, sem er í tungunni á mótum Svarfaðardals og Skíðadals. Þar er dregið í sundur, drukkið kaffi í Tunguseli, skála Kvenfélagsins Tilraunar, sungið og pelum lyft. Þá er oft glatt á hjalla. Eftir það reka bændur fé sitt heim eða aka því, sem er mun algengara. Að kvöldi er dansleikur, gangnaball, í hinu fornfræga samkomuhúsi á Höfða í Svarfaðardal.
Gangnaforingjar
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirliði gangnamanna í Sveinsstaðaafrétt kallast gangnaforingi. Steingrímur Eiðsson (1915-1976), bóndi á Ingvörum var gangnaforingi um langan aldur eða allt frá 1938 og fram yfir 1970. Árni Veigar Steingrímsson (1943-2009) sonur hans tók við af honum, seinna varð Eiður Steingrímsson (1943-2015), bróðir hans, gangnaforingi og hélt þeirri tign til 2009. Núverandi gangnaforingi er Karl Heiðar Friðriksson frá Grund.
Krosshólshlátur
[breyta | breyta frumkóða]Mikil menning og sagnaarfur tengist göngum í Sveinsstaðaafrétt. Gangnamenn halda góða skrá yfir hverjar göngur þar sem greint er frá helstu atburðum, tíðarfari og fjárheimtur. Einnig er skráður kveðskapur sem jafnan verður til í göngum. Bókin sem geymir þetta efni nefnist Krosshólshlátur eftir þekktri þjóðsögu í safni Jóns Árnasonar. Samnefnd vísa eftir Hjört E. Þórarinsson er þjóðsöngur eða einkennisstef gangnamanna:
- Hér skal ætíð hafa völd
- hugur ofsakátur,
- megi hljóma um ár og öld
- og eilífð Krossshólshlátur.
Gefin hefur verið út bók um gangnamenningu Svarfdæla með miklum frásögnum og kveðskap úr Sveinsstaðaafrétt. Bókin, sem ber nafnið Krosshólshlátur, er skráð af Hjörleifi Hjartarsyni í Laugasteini og kom út 2013.