Svavar Lárusson - Fiskimannaljóð frá Capri
Útlit
Svavar Lárusson syngur | |
---|---|
IM 26 | |
Flytjandi | Svavar Lárusson, SY-WE-LA kvintettinn |
Gefin út | 1953 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Svavar Lárusson syngur er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1953. Á henni flytur Svavar Lárusson tvö lög með SY-WE-LA kvintettinum norska. Lögin höfðu bæði komið út áður á IM 3 og IM 4 og voru ein fyrstu íslensku danslögin til að koma út á plötu. Platan er hljóðrituð í mono. Upptökur fóru fram hjá Norska útvarpinu. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Fiskimannaljóð frá Capri - Lag - texti: Winkler - Friðjón Þórðarson- ⓘ
- Hreðavatnsvalsinn - Lag - texti: Knútur R. Magnússon - Atli Þormar
Fiskimannaljóð frá Capri
[breyta | breyta frumkóða](Lag: Bella, Bella Maria)
- Er við Caprí að ægi sígur hin gullna sól
- og hinn silfraði máni glottir við himins stól,
- róa sjómenn til fiskjar fram á hið bláa haf
- og þeir fella sín net við öldunnar ljósa traf.
- Stjörnuskarinn á himni lýsir þeim leifturhreinn,
- öll þau ljósmerki þekkir farmaður hver og einn
- og frá einum bát til annars hljómar þá
- vítt um haf söngur sá.
- Unga, fagra ástkæra mey
- ver mér trú, heim að morgni flýtur fley.
- Unga, fagra ástkæra mey
- Ó, gleym mér ei.
- Sjáið báta blys blika vítt um sjá,
- blakta undur smá, hvað er það þá
- sem hvarfla lætur ljós á brá?
- Veistu hvað fer þar yfir öldurnar?
- Óteljandi fiskimenn, í fjarska ómar lag.