Surtshellir
Surtshellir er einn lengsti og þekktasti hraunhellir á Íslandi, um 1.970 metrar á lengd (Kalmanshellir er lengri). Surtshellir er í Hallmundarhrauni, á um 40 m dýpi í um 14 km frá Húsafelli og 60 km frá Borgarnesi. Hæð til lofts í aðalhelli er 8-10 m og 2-4 m í vesturenda hans. Innsti hluti hellisins hefur verið kallaður Íshellir því í honum myndast ísstrýtur. Íshellir er í senn greiðfærasti og fegursti hluti hellisins, en hellisgólf hallar nokkuð. Þá er seinfarið um hellinn því í botni hans er víða stórgrýtt urð, sem fallið hefur úr þakinu. Á hellisþaki eru fimm op sem komast má um inn í hellinn. Opin hafa ýmist myndast við hrun eða sem útrásir fyrir hraunleðju. Þrír afhellar eru út frá fremsta hluta Surtshellis, Beinahellir, Hringhellir og Vígishellir hvar innan eru mannvirki, grjóthleðsla og fleiri hleðslur. Skammt frá Surtshelli er hellirinn Víðgelmir. Surtshellir og Víðgelmir eru vinsælir áfangastaðir ferðamanna.
Sögur og sagnir
[breyta | breyta frumkóða]Surtshellir er kenndur við jötuninn Surt úr norrænni goðafræði. Í Landnámu og Harðarsögu segir frá vígamönnum sem eiga að hafa haft fylgsni sitt í hellinum. Þaðan er talið að Hellismannasaga sem Jón Árnason reit í þjóðsögusafn sitt hafi komið.
Nálægir staðir
[breyta | breyta frumkóða]- Hraunfossar , Víðgelmir , Langjökull , Barnafoss .
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson og Páll Líndal (1982). Landið þitt Ísland, S-T. Örn og Örlygur.
- „Vesturland.is - Afþreying og staðir“. Sótt 15. júlí 2010.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- „Tveir hellar í Hallmundarhrauni“; grein í Skírni 1910
- Húsafell.is - Surtshellir Geymt 15 desember 2006 í Wayback Machine
- NAT.is - Surtshellir Geymt 2 júní 2008 í Wayback Machine
- Björn Hróarsson, etal.: Lava caves in the Hallmundarhraun lava flow, West Iceland. Proceedings of the 6th International Symposium on Volcanospeleology. (1991) (á ensku) Geymt 24 nóvember 2020 í Wayback Machine