Fara í innihald

Stórar tölur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Stórar tölur eru tölur, sem vegna stærðar sinnar eru lítt notaðar af almenningi frá degi til dags, en koma gjarnan fyrir á sviði vísinda, verkfræði, fjármála o.s.frv. og hafa fengið sérstök heiti. (Getur einnig átt við stórar prímtölur.) Heiti yfir tvær mismunandi tölur geta verið skrifuð eins og borin fram svipað í tveimur tungumálum og því valdið misskilningi.

Í sögulegu samhengi notuðu Bretar og margar aðrar þjóðir önnur hugtök fyrir stórar tölur, t.d. þeirra billjón 1000 sinnum stærri en Ameríkana. En áhrif t.d. alþjóðlegra fjölmiðla hafa breytt því og flestar enskumælandi þjóðir, t.d. Bretar, Írar og Ástralir nota nú ameríska kerfið. Ísland og aðrar evrópuþjóðir nota enn gömlu bresku hugtökin, t.d. billjón og milljarður, en það getur valdið ruglingi.

Heiti talnanna á amerískri og (fyrrum) breskri ensku eru birt í töflunni hér að neðan.

Heiti stórra talna
10x Íslenska Amerísk enska Söguleg bresk enska 1.000.000x
103 þúsund thousand thousand 1.000.0000,5
106 milljón million million 1.000.0001
109 milljarður billion (milliard) 1.000.0001,5
1012 billjón trillion billion 1.000.0002
1015 billjarður quadrillion 1.000.0002,5
1018 trilljón quintillion trillion 1.000.0003
1021 trilljarður sextillion 1.000.0003,5
1024 kvaðrilljón septillion quadrillion 1.000.0004
1027 kvaðrilljarður octillion 1.000.0004,5
1030 kvintilljón nonillion quintillion 1.000.0005
1033 kvintilljarður decillion 1.000.0005,5
1036 sextilljón undecillion sextillion 1.000.0006
1039 sextilljarður duodecillion 1.000.0006,5
1042 septilljón tredecillion septillion 1.000.0007
1045 septilljarður quattuordecillion 1.000.0007,5
1048 oktilljón quindecillion (quinquadecillion) octillion 1.000.0008
1051 oktilljarður sexdecillion (sedecillion) 1.000.0008,5
1054 nónilljón septendecillion nonillion 1.000.0009
1057 nónilljarður octodecillion 1.000.0009,5
1060 desilljón novemdecillion (novendecillion) decillion 1.000.00010
1063 desilljarður vigintillion 1.000.00010,5
... ... ... ... ...
10100 googol (tíu sedesilljarðar) googol googol 10 × 1.000.00016,5
10303 kvinkvagintilljarður centillion 1.000.00050,5
1010100 googolplex googolplex googolplex
  • „Hvaða tölur koma á eftir milljón og milljarði?“. Vísindavefurinn.
  • „Ég veit að tölur geta orðið óendanlega stórar en hver er stærsta tala sem hefur verið gefið sérstakt nafn?“. Vísindavefurinn.