Fara í innihald

Konungsskuggsjá

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Speculum regale)
Síða úr aðalhandriti Konungs skuggsjár.
Upphafsstafur, ritsýni.

Konungsskuggsjá eða Konungs skuggsjá – (á latínu: Speculum regale) – er norskt fornrit frá árunum 1250-1260. Konungs skuggsjá er fræðslurit, sett upp sem samtal föður og sonar, og tilheyrir bókmenntagrein sem nefnd hefur verið furstaspegill.

Ritið skiptist í þrjá hluta. Í þeim fyrsta eru ráðleggingar til kaupmanna, í öðrum til hirðmanna og í þeim þriðja til konunga.

Konungsskuggsjá er varðveitt í mörgum handritum, og flest þeirra eru íslensk.

  • Hálfdan Einarsson (útg.): Konungs skuggsjá, Sórey 1768. – Frumútgáfa með danskri og latneskri þýðingu.
  • Finnur Jónsson (útg.): Konungs skuggsjá, Kaupmannahöfn 1920–1921. – Fræðileg útgáfa.
  • Ludvig Holm-Olsen (útg.): Konungs skuggsjá, Osló 1945. – Endurskoðuð útgáfa, 1983.
  • Magnús Már Lárusson (útg.): Konungs skuggsjá, Reykjavík 1955. – Aðgengileg lestrarútgáfa, með nútímastafsetningu.
  • „Hvers konar rit er Konungsskuggsjá?“. Vísindavefurinn.
  • Íslendingar björguðu Konungsskuggsjá; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1950
  • Rýnt í Konungsskuggsjá; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1991
  • „Staða Konungsskuggsjár í vestrænum miðaldabókmenntum“; grein í Griplu 1. hefti, 1990