Seltulauf
Seltulauf | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Seltulauf.
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Cladonia strepsilis (Ach.) Grognot[2] |
Seltulauf (fræðiheiti: Cladonia strepsilis) er tegund fléttna af bikarfléttuætt. Seltulauf finnast á Íslandi en þó aðeins á nokkrum stöðum á Austurlandi. Það er á válista sem tegund í útrýmingarhættu (EN) hér á landi.[1]
Ólíkt mörgum öðrum bikarfléttum mynda seltulauf nær aldrei þalgreinar heldur vex sem hreistrótt blaðflétta.
Hið íslenska nafn seltulaufa vísar til vaxtarstaðar þeirra sem er yfirleitt nærri sjó.[3]
Búsvæði á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Seltulauf finnst aðeins á nokkrum stöðum á Austfjörðum frá Hornafirði til Borgarfjarðar. Þau vaxa á jarðvegi einkum nálægt sjávarsíðunni.[3]
Efnafræði
[breyta | breyta frumkóða]Seltulauf innihalda fléttuefnin baeomycinsýru, strepsilin og squamatinsýru. Þalsvörun seltulaufa er K-, C+ græn, KC-, P+ skærgul. Hin græna C þalsvörun er einsdæmi í íslensku fléttuflórunni og því má nota auðvelt greiningareinkenni fyrir tegundina.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 Náttúrufræðistofnun Íslands (1996). Válisti 1: Plöntur. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.
- ↑ Hörður Kristinsson & Starri Heiðmarsson (2009). Skrá yfir fléttur á Íslandi. Sótt af vefsvæði Flóru Íslands.
- ↑ 3,0 3,1 3,2 Hörður Kristinsson (2016). Íslenskar fléttur. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag. ISBN 978-9979-66-347-8