Saxo Grammaticus
Ei skal ég heldur láta iðni Íslendinga liggja í þagnargildi. Sökum þess hve hrjóstrug er feðrajörð þeirra, hafa þeir orðið að lifa hófsömu lífi, og leggja þeir í vana sinn að safna þekkingu um afrek annarra og gera hana lýðum ljósa, bæta þeir sér þannig veraldlega fátækt sína með auðlegð andans. Þykir þeim góð skemmtan að fræðast um það, er sögulegt gerist með öllum þjóðum, og skrá það til arfs handa þeim, er eftir koma, og sýnist þeim eigi minni heiður að segja frá stórvirkjum annarra en sjálfir vinna þau. Fjárhirslur þeirra, sem eru fullar af kostugum sögum um viðburði fortíðarinnar, hefi ég gaumgæfilega rannsakað, og eigi alllítinn hluta af verki þessu hefi ég grundvallað á sögum þeirra, því ég hefi ekki álitið það ósamboðið virðingu minni að nota þá sem heimildarmenn, þar eð ég vissi, hversu vel fornöld var þeim kunn. — Um Íslendinga, þýðing á textabroti eftir Saxo Grammaticus 13. öld
Saxo Grammaticus (f. 1150 d. 1220) (Saxi málspaki eða Saxi fróði) var danskur sagnaritari sem skrifaði sögu Danmerkur, Gesta Danorum, í sextán bindum. Hann hefur líklega starfað hjá Absalon, sem var biskup í Hróarskeldu og síðar erkibiskup í Lundi. Að öðru leyti er afar lítið vitað um Saxo, utan það sem hann segir sjálfur í bók sinni. „Grammaticus“ (= málfræðingur) er viðurnefni sem honum var gefið síðar, vegna þess hve vel hann skrifar á latínu.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- On-Line Medieval and Classical History: The Danish History books I-IXGeymt 1 maí 2012 í Wayback Machine, translated by Oliver Elton (Norroena Society, New York, 1905).
- Gesta Danorum in Latin
- One of the versions in the Danish Royal Library Geymt 10 júní 2007 í Wayback Machine
- Saxo Grammaticus á dönsku
- Gesta Danorum, English Book I-IX: Online Medieval and Classical Library Geymt 20 maí 2005 í Wayback Machine
- Gesta Danorum, Latin version Book I-XVI: The Royal Danish Library
- Gesta Danorum, Latin and English side by side: [1] Geymt 11 mars 2007 í Wayback Machine
- Project Runeberg - Saxo Grammaticus Project Runeberg on Saxo Grammaticus og Gesta Danorum
- Verk eftir Saxo Grammaticus hjá Project Gutenberg