Fara í innihald

Sana

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Sana'a)
Staðsetning Sana í Jemen.

Sana (arabíska: صنعاء) er höfuðborg Jemen. Árið 2004 bjuggu 1.747.627 manns í borginni. Elstu ritaðar heimildir um borgina eru frá 1. öld eftir Krist.

Í byrjun árs 2015 tókst uppreisnarher Hútí-fylkingarinnar að leggja undir sig borgina. Í borgarastyrjöldinni sem geisar enn í Jemen hefur Sana því verið bækistöð uppreisnarmannanna á meðan viðurkennd stjórn landsins hefur lengst af haldið til í Aden.[1]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Sunna Ósk Loga­dótt­ir (28. mars 2017). „Hvað geng­ur á í Jemen?“. mbl.is. Sótt 17. desember 2018.
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.