Njóli
Útlit
(Endurbeint frá Rumex longifolius)
Njóli | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Mynd af njóla tekin við Mývatn 2008.
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Rumex longifolius DC. |
Njóli (einnig nefndur heimula, heimulunjóli eða fardagakál) (fræðiheiti: Rumex longifolius) er stórvaxin fjölær jurt af ættkvísl súra. Hann hefur flust til Íslands af mannavöldum og vex í dag einkum í kauptúnum og við sveitabæi. Njóla fjölgar mikið þar sem áburðarríkt ræktarland hefur verið yfirgefið. Blóm njóla eru græn.
Njólinn var notaður sem lækningajurt og fersk njólablöð talin holl. Blöðin á njóla (heimilis njólablöðkur) kallast fardagakál og voru fyrr á tímum elduð sem kálgrautur og þótti gott að hafa túnsúrur saman við.
Einnig var hann notaður sem litunarjurt á Íslandi. Úr blöðum hans fæst grænn og sterkgulur litur.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Njóli.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist njóla.
Wikilífverur eru með efni sem tengist njóla.