Fara í innihald

Pylsa

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Pulsubrauð)
Pylsa með öllu

Pylsa (stundum óformlega borið fram og skrifað pulsa)[1] er langur og mjór himnubelgur sem er fylltur af elduðu, söltuðu og/eða reyktu kjötfarsi. Pylsan er oft reidd fram í aflöngu brauði (‚pylsubrauði‘) sem er af svipaðri lengd og pylsan sjálf.[2]

„Pylsa með öllu“,[3] stundum kölluð „þjóðarréttur Íslendinga“,[4][5][6][7][8] er pylsa í brauði með tómatsósu, sinnepi, remúlaði og steiktum og hráum lauk.[9][10][11]

Þann 20. nóvember 2004 var í Kringlunni sett heimsmet „lengsta pylsa í brauði“.[10][12][11] Pylsan var 11,92 metrar.[13] Þetta heimsmet var staðfest í september 2005 af Heimsmetabók Guinness.[14] Reyndar tók þessi staðfesting svo lengi að í millitíma var þetta heimsmet slegið tvisvar – 15. júlí 2005 (15,42 m) og 14. ágúst 2005 (17,5 m).

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Hvort er réttara að segja og rita pylsa eða pulsa?, Guðrún Kvaran, Vísindavefurinn, 23. apríl 2003.
  2. Er það pylsa eða pulsa?, Morgunblaðið, 9. maí 2019, bls. 30.
  3. Ein með öllu stendur fyrir sínu, Morgunblaðið, 29. júlí 1995, bls. 16.
  4. Hádegismatur fyrir 1.000 krónur eða minna, DV, 5. október 2018, bls. 28. („Hún er kölluð þjóðarréttur Íslendinga, blessuð pylsan með öllu, engu eða sumu.“)
  5. Pylsan hækkar en kókið ekki, Morgunblaðið, 26. mars 2015, bls. 2. („Þjóðarrétturinn kostar nú 400 krónur [...] Þjóðarréttur Íslendinga, pylsa með öllu, hækkaði um 20 krónur fyrir skömmu [...])
  6. Ódýrar pylsur, DV, 20. maí 2008, bls. 14. („Þjóðarréttur Íslendinga, pylsa með öllu, er nokkuð sem fæstir virðast fá nóg af.“)
  7. Pylsa með öllu, Fréttir, 6. desember 2001, bls. 4. („Það sem ég ætla að bjóða upp á þessa vikuna er þjóðarréttur Íslendinga, pylsa með öllu, sem allir hafa smakkað út í sjoppu [...]“)
  8. Örugg aðferð til þess að vera 100% vinstrisinnaður, Þjóðviljinn, 7. september 1986, bls. 4. („Heit pylsa með öllu er hlutlaus því hún er þjóðarréttur.“)
  9. Akureyrska spurningakeppnin, Morgunblaðið, 11. júlí 2019, bls. 41. („Pylsa með öllu er yfirleitt með tómatsósu, sinnepi, remúlaði, steiktum lauk og hráum lauk.“)
  10. 10,0 10,1 Heimsmet og ekki miðað við höfðatölu, Morgunblaðið, 22. nóvember 2004, bls. 30. („[...] sem var búið til fyrir heimsmetið. Að íslenskum sið var búin til pylsa með öllu og því voru í brauðinu tólf metra lengjur af tómatsósu, sinnepi, remúlaði, steiktum lauk og hráum.“)
  11. 11,0 11,1 Búa til stærstu pylsu í heimi, Fréttablaðið, 17. nóvember 2004, bls. 38. („Pylsan verður tólf metra löng og á hún að setjast í brauð með steiktum og hráum lauk, tómatsósu, sinnepi og remúlaði. Semsagt ein með öllu.“)
  12. Heimsins lengsta pylsa í brauði, Morgunblaðið, 20. nóvember 2004, bls. 2.
  13. Pylsur og jójó, Morgunblaðið, 9. nóvember 2005, bls. 42.
  14. Guinness staðfestir Íslenska pulsan er best og stærst, DV, 24. september 2005, bls. 62.