Runnamura
Útlit
(Endurbeint frá Potentilla fruticosa)
Runnamura | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Dasiphora fruticosa subsp. floribunda
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Dasiphora fruticosa (L.) Rydb. | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Listi
|
Runnamura (fræðiheiti: Dasiphora fruticosa eða Potentilla fruticosa) er harðgerður og vindþolinn runni af rósaætt. Runnamura er garðplanta sem hefur verið lengi í ræktun, hún líkist að nokkru gullmuru.
Útlit
[breyta | breyta frumkóða]Blöð eru stakfjöðruð og fingruð og eru 3-5-7 smáblöð saman. Blaðjaðrarnir eru heilir og blöðin hærð á neðra borði. Greinar eru fíngerðar, uppréttar og þéttar. Börkur flagnar af gömlum greinum. Blómlitur er gulur, hvítur eða rauðleitur. Runnamuru er fjölgað með sumargræðlingum. Til eru nálægt 130 afbrigði af runnamuru. Hæst ná þær 1-1,5 metrum. Blómgun er síðsumars, frá júlí til september.
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Runnamuru.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Runnamuru.