Patricia Churchland
Patricia Smith Churchland | |
---|---|
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 16. júlí 1943 |
Svæði | Vestræn heimspeki |
Tímabil | Heimspeki 20. aldar, Heimspeki 21. aldar |
Skóli/hefð | Rökgreiningarheimspeki |
Helstu ritverk | Neurophilosophy: Toward a Unified Science of the Mind-Brain |
Helstu kenningar | Neurophilosophy: Toward a Unified Science of the Mind-Brain |
Helstu viðfangsefni | hugspeki, vísindaheimspeki |
Patricia Smith Churchland (fædd 16. júlí 1943 í Oliver, British Columbia í Kanada) er kanadískur heimspekingur og prófessor í heimspeki við Kaliforníuháskóla í San Diego. Hún hlaut MacArthur-verðlaunin árið 1991.
Churchland hlaut menntun sína við Háskólann í British Columbia, Pittsburgh-háskóla og Oxford-háskóla. Hún kenndi heimspeki við Háskólann í Manitoba frá 1969 til 1984. Patricia er eiginkona heimspekingsins Pauls Churchland.
Churchland hefur einkum einbeitt sér að tengslum taugavísinda og heimspeki. Ásamt eiginmanni sínum Paul er hún einn helsti málsvari útrýmingarefnishyggju en samkvæmt henni eru hugtök alþýðusálfræðinnar á boðr við skoðun og meðvitund óskýr og illa skilgreind hugtök sem koma til með að verða óþörf í fræðilegri útskýringu á starfsemi heilans. Patricia hefur einnig verið kölluð náttúruhyggjusinni af því að hún telur að rannsaka beri hugann með vísindalegum aðferðum. Hún hefur undanfarið rannsakað hvernig gera megi grein fyrir vali, ábyrgð og undirstöðum siðferðisins á grundvelli heilastarfsemi.
Helstu ritverk
[breyta | breyta frumkóða]- Neurophilosophy: Toward a Unified Science of the Mind-Brain (Cambridge, MA.: MIT Press, 1986).
- On the Contrary: Critical Essays 1987-1997, ásamt Paul M. Churchland (Cambridge, MA.: MIT Press, 1998).
- Brain-Wise: Studies in Neurophilosophy (Cambridge, MA.: MIT Press, 2002).
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Vefsíða Patriciu Churchland Geymt 16 maí 2008 í Wayback Machine