Maríukirkjan í París
Höfundur | Victor Hugo |
---|---|
Upprunalegur titill | Notre Dame de Paris |
Þýðandi | Björgúlfur Ólafsson (1948) |
Land | Frakkland |
Tungumál | Franska |
Stefnur | Rómantíkin, gotnesk skáldsaga |
Útgefandi | Gosselin Leiftur (á Íslandi) |
Útgáfudagur | 16. mars 1831 |
Maríukirkjan í París (franska: Notre-Dame de Paris), einnig þekkt sem Hringjarinn í Notre-Dame, er gotnesk skáldsaga eftir franska rithöfundinn Victor Hugo sem kom út árið 1831. Titill bókarinnar vísar til Notre Dame-dómkirkjunnar í París, sem er mikilvægur hluti af sögusviði bókarinnar.
Sagan gerist í París á 15. öld og fjallar um Quasimodo, hringjarann í Notre-Dame; Esmeröldu, götudansara af Rómaþjóðerni; og Claude Frollo erkidjákna, forráðamann Quasimodos. Umfjöllunarefni bókarinnar, meðal annars ytri tími verksins á endurreisnartímabilinu og áhersla á forboðnar ástir og fólk úr jaðarsettum þjóðfélagshópum, eru í anda rómantíkurinnar.
Skáldsagan er talin sígilt verk franskra bókmennta[1] og margar kvikmyndir, leikrit og sjónvarpsþættir hafa verið gerðar eftir henni. Þar á meðal má nefna þögla mynd frá 1923 með Lon Chaney í aðalhlutverki, mynd frá 1939 með Charles Laughton, mynd frá 1956 með Anthony Quinn og Disney-teiknimynd frá 1996 með Tom Hulce.
Bókin var skrifuð á miklum umrótatíma í franskri menningu og í henni er áhersla lögð á varðveislu sögulegra minja. Með bókinni átti Victor Hugo þátt í því að festa Notre Dame-dómkirkjuna í París í sessi sem eitt af þjóðartáknum Frakklands og auka áhuga almennings á vernd gotneskrar byggingarlistar sem hluta af menningarlegri arfleifð Parísarborgar.[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „The Hunchback of Notre-Dame: Victor Hugo's classic novel shoots up Amazon sales following cathedral fire“. The Independent. 16. apríl 2019. Afrit af uppruna á 18. júní 2022.
- ↑ „The Hunchback of Notre Dame | Summary, Characters, Book, & Facts“. Encyclopædia Britannica (enska). Sótt 16. október 2020.