Norðmannsreynir
Norðmannsreynir | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||
Sorbus norvegica Hedl. |
Norðmannsreynir (Sorbus norvegica) er reynitegund.
Lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Norðmannsreynir getur orðið mest 15m hár með stofn að 25 sm í þvermál. Blöðin eru breið aflöng til öfugegglaga, breiðust við eða fyrir ofan miðju; að ofan dökkgræn, og að neðan gráhvít hæring. Óreglulega sagtennt. Blómin eru hvít og eru í breiðum hálfsveip. Berin eru rauð, kringlótt og 10 til 13 sm löng.
Útbreiðsla og búsvæði
[breyta | breyta frumkóða]Norðmannsreynir finnst næstum einvörðungu í Noregi þar sem hann vex meðfram ströndinni frá Halden í Østfold til Sirevåg í Rogaland. Nokkrir fundarstaðir á Vestlandet eru líklega útplantanir eða úrvilling úr ræktun. Í Svíþjóð finnst hann á nokkrum stöðum í Bohuslän og Dalsland. Tegundin vex í kjarri, skógarjaðri, fjöllum og skriðum.
Norðmannsreynir er fjórlitna og fjölgar sér með geldæxlun. Hann hefur líklega komið fram við tvöföldun litninga hjá hinni suðlægari tegund Seljureyni (Sorbus aria).