Nið
Útlit
Nið er á sem rennur gegnum Þrándheim og til sjávar í Þrándheimsfirði í Noregi. Þar var gott skipalægi og þar myndaðist kaupstaður og byggðin Niðarós sem nú nefnist Þrándheimur. Fyrir framan ána er hólminn Niðarhólmur. Nið er 31,2 km löng og rennur til norðurs frá Selbusjøen. Áin er hluti af stærra vatnakerfi sem nær alveg til landamæra Noregs og Svíþjóðar.
Fiskveiði Í efsta hluta Nið eru urriðar og milli Nedre- og Øvre Leirfoss er öllum heimilt að veiða. Í neðstu átta km árinnar er laxveiði.
-
Øvre Leirfoss mynd eftir John William Edy árið 1800
-
Timburfleyting í Nið um 1910-1915
-
Bryggjur í Nið um 1955
-
Laxveiði í Nið
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Nidelva_(Trøndelag)“ á norsku útgáfu Wikipedia. Sótt 24. ágúst 2019.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Nið.