Mount Saint Elias
Útlit
Mount Saint Elias er annað hæsta fjall, bæði Kanada og Bandaríkjanna; 5489 metrar yfir sjávarmáli. Það liggur í samnefndum fjallgarði á landamærum Alaska og Júkon og er 40 kílómetrum suðvestur af Mount Logan, hæsta fjalli Kanada. Þjóðgarðar eru ennfremur sitt hvorum megin við fjallið.
Saint Elias-fjall var fyrst klifið af Ítala árið 1897; prins Luigi Amadeo di Savoia. Fyrsta veturganga á toppinn var árið 1996. Fjallið þykir erfitt til klifurs.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Saint Elias-fjöll
- Wrangell–St. Elias-þjóðgarðurinn og verndarsvæði (Alaska)
- Kluane-þjóðgarðurinn og verndarsvæði (Júkon)
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Mount Saint Elias.
Fyrirmynd greinarinnar var „Mount Saint Elias“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 6. mars 2018.