Maren orkustjórnunarkerfi
Maren | |
Höfundur | Jón Ágúst Þorsteinsson |
---|---|
Hönnuður | Marorka |
Nýjasta útgáfa | Maren 2.8 / 2010 |
Stýrikerfi | Windows 7 |
Tungumál í boði | Íslenska, enska |
Notkun | Orkustjórnunarkerfi |
Vefsíða | Marorka] |
Maren er orkustjórnunarkerfi fyrir skip notað til að lágmarka olíunotkun, þar með minnka eldsneytiskostnað útgerða og draga úr mengun sjófara. Það er þróað af fyrirtækinu Marorku. Maren 2 kerfið var gefið út seinni hluta ársins 2005 og sýnt á Sjávarútvegssýningunni í Kópavogi það ár. Maren 2 hlaut það árið verðlaun sem besta nýja varan á sýningunni.
Maren kerfið fylgist með mismunandi gerðum orkukerfa um borð í hinum ýmsu tegundum skipa. Það sýnir skipsstjórnendum samhengi milli stýringa þessara kerfa og olíueyðslu skipsins. Maren notar hermun og bestun til að koma með tillögur að bættri stýringu og tekur við það mið af hönnun skipsins og aðgerðum um borð.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]Samtök Iðnaðarins Geymt 26 október 2007 í Wayback Machine
Marorku fréttir[óvirkur tengill]