Mýrar (Dýrafirði)
Útlit
Mýrar í Dýrafirði er bær og kirkjustaður í Dýrafirði. Þar er eitt stærsta æðarvarp landsins. Kirkja hefur verið á Mýrum að minnsta kosti frá því á 12. öld og var hún helguð Jóhannesi skírara í kaþólskum sið. Núverandi kirkja var reist árið 1897.
Mýra er getið nokkrum sinnum í Sturlungu og meðal annars fór Þórdís Snorradóttir þangað þegar Órækja bróðir hennar hrakti hana frá Vatnsfirði og settist þar að. Neðan við túnið er Gvendarbrunnur sem minnst er á í Guðmundar sögu Arasonar.
Kaupfélag Dýrfirðinga var stofnað á Mýrum 8. júní 1919.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Mýrar (Dýrafirði).