Laugardagskvöld (plata)
Útlit
Laugardagskvöld | |
---|---|
T 25 | |
Flytjandi | Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar |
Gefin út | 1985 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Tónaútgáfan |
Laugardagskvöld er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af Tónaútgáfunni árið 1985. Á henni flytur Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar tólf dægurlög. Upptaka í stereó: Stúdíó Bimbó. Hönnun umslags: Delfi. Pressun: Alfa. Ljósmynd: Norðurmynd. Prentun: Valprent hf. Akureyri.Filmugerð: Korpus.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Það er laugardagskvöld - Lag - Texti: Geirmundur Valtýsson - Hörður Ólafsson
- Drengur - Lag - Texti: Hörður Ólafsson
- Mylluhjólið - Lag - Texti: Geirmundur Valtýsson - Helgi Valtýsson
- Ekki of seint - Lag - Texti: Hörður Ólafsson
- Bíddu við - Lag - Texti: Geirmundur Valtýsson - Textahöfundur ókunnur
- Hjá konu og börnum - Lag - Texti: Hörður Ólafsson
- Ég er einn - Lag - Texti: Hörður Ólafsson
- Úti að aka - Lag - Texti: Geirmundur Valtýsson - Birgir Marinósson
- Lítið skrjáf í skógi - Lag - Texti: Geirmundur Valtýsson - Aðalsteinn Hansson
- Sannur sjómaður - Lag - Texti: Hörður Ólafsson
- Út á sjóinn - Lag - Texti: Geirmundur Valtýsson - Stefán Guðmundsson
- Stelpur og stuð - Lag - Texti: Hörður Ólafsson
Textabrot af bakhlið plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar á Sauðárkróki sendir nú frá sér sína fyrstu LP plötu. Lögin á plötunni eru eftir þá Hörð Ólafsson bassa leikara og Geirmund. Hörður hefur einnig samið textana við sín lög, en textarnir við lög Geirmundar eru úr ýmsum áttum.
Hljómsveitina skipa: Geirmundur Valtýsson, söngur, gítar, harmonikka, hljóðgerfill, raddir. Hörður Ólafsson, söngur, bassi, raddir. Rögnvaldur Valbergsson, rafmagnspíanó, orgel, strengjavél. Viðar Sverrisson, trommur, raddir. Aðstoðarmenn á þessari plötu: Finnur Eydal, klarinett. Þorsteinn Kjartansson, tenor sax, bariton sax. |
||
— NN
|