Fara í innihald

Laugar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Laugar (Þingeyjarsveit)

Laugar í Reykjadal er þéttbýliskjarni í Þingeyjarsveit á Norðurlandi eystra. Þar er stjórnsýsla Þingeyjarsveitar og þar er aðalútibú Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Á Laugum starfar fiskvinnslufyrirtækið Laugafiskur og hefur lengi verið rekin verslun. Íbúar voru 128 árið 2015.

Á Laugum starfa 4 skólar, leikskólinn Krílabær, Litlulaugaskóli sem er grunnskóli, Framhaldsskólinn á Laugum og Tónlistarskólinn á Laugum.

  Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.