Látún
Látún (einnig nefnt messing eða brass) er málmblanda kopars og sinks. Sumar tegundir látúns eru kallaðar brons þrátt fyrir hátt innihald sinks.
Látún er verðmætt framleiðsluefni sökum hörku þess og vinnsluhæfni. Alfa látún, með minna en 38% sink, er hamranlegt og hægt að vinna með það kalt. Beta látún, með hærra sinkmagn, er einungis hægt að vinna með hitað, en það er harðara og sterkara. Hvítt látún, með meira en 45% sink, er of brothætt fyrir daglega notkun. Sumar tegundir látúns eru bætt öðrum málmum til að breyta eiginleikum þeirra.
Látún hefur verið þekkt síðan aftur á fornöld, langt áður en að sink eitt og sér var uppgötvað. Það var framleitt með því að bræða kopar saman við kalamín, sem að er sinkgrýti. Við þetta ferli, vinnst sink úr kalamíninu og blandast samstundis við koparinn. Hreint sink er hinsvegar of hvarfgjarnt til að framleiða með eldgömlum málmframleiðsluaðferðum.
Í biblíunni er minnst á látún.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]- Brons — málmblanda kopars og tins.
- Látúnshljóðfæri — málmblásturshljóðfæri, smíðuð úr látúni.