Kvenréttindafélag Íslands
Útlit
Kvenréttindafélag Íslands er félag á Íslandi sem vinnur að því að bæta réttindi kvenna.
Félagið var stofnað árið 1907 á heimili Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og var hún fyrsti formaður félagsins og gengdi þeirri stöðu næstu 20 árin. Markmið félagsins við stofnun var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningaréttur, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn. Félagið hefur ásamt fleiri kvennasamtökum aðsetur í Hallveigarstöðum.
Kvenréttindafélag Íslands gefur út ársritið 19. júní, eitt elsta tímarit á Íslandi, sem hefur komið út á kvenréttindadeginum árlega frá 1951.
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]- Kvenréttindafélag Íslands Geymt 23 febrúar 2006 í Wayback Machine
- 19. júní Geymt 25 október 2016 í Wayback Machine,