Kisugras
Útlit
Kisugras | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||
Myosotis discolor Pers. |
Kisugras[1] (fræðiheiti: Myosotis discolor[2]) er einært blóm af munablómaætt. Það er ættað frá Evrópu en hefur breiðst út til N-Ameríku. Á Íslandi hefur það fundist á láglendi suðurlands. Kisugras verður um 5 - 15 sm hátt. Blóm þess eru fölblá til rjómalit og 1 til 2 mm í þvermál. Því svipar nokkuð til gleym-mér-eyjar, en er allt mun minna.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Akureyrarbær. „Garðaflóra“. Lystigarður Akureyrar. Sótt 1. apríl 2024.
- ↑ Roskov Y., Kunze T., Orrell T., Abucay L., Paglinawan L., Culham A., Bailly N., Kirk P., Bourgoin T., Baillargeon G., Decock W., De Wever A., Didžiulis V. (ed) (2019). „Species 2000 & ITIS Catalogue of Life: 2019 Annual Checklist“. Species 2000: Naturalis, Leiden, the Netherlands. ISSN 2405-884X. TaxonID: 53596097. Sótt 31. mars 2024.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Kisugras.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Myosotis discolor.