Jens Fink-Jensen
Jens Fink-Jensen (fæddur 19. desember, 1956 í Kaupmannahöfn) er danskur rithöfundur, ljóðskáld, ljósmyndari og tónskáld.
Fyrsta framlag hans til fagurbókmennta birtist á prenti í júní 1975, en þá kom skáldsaga hans Júní 1995 út í dagblaðinu "Information". Ári síðar birtust ljóð hans Skæbnefuglen (Örlagafuglinn), Dagligdags (Hvunndagurinn), Eftermiddagsdigt (Síðdegisljóð) og Etikette (Siðvenja) í tímaritinu "Hvedekorn" nr. 76/1.
Hann gaf út fyrstu bók sína í október 1981, með ljóðasafninu Verden i et øje (Horft á heiminn). Í júní 1986 gaf hann út smásagnasafnið Bæsterne (Vitringarnir) og 1994 kom út fyrsta barnabók hans, Jonas og konkylien (Jónas og konkúllinn).
Jens Fink-Jensen lauk stúdentsprófi úr nýmáladeild Herlufsholm Kostskole 1976. Að því loknu þjónaði hann herskyldu og var á meðan henni stóð í framhaldsnámi í stjórnun í Konunglegu lífvarðarsveitinni (Den Kongelige Livgarde). Hann lauk arkítektanámi (MAA, cand.arch.) í Kunstakademiets Arkitektskole árið 1986 og námi í margmiðlun úr sama skóla árið 1997.
Útgefin verk
[breyta | breyta frumkóða]- Verden i et øje, ljóðasafninu, 1981
- Sorgrejser, ljóðasafninu, 1982
- Dans under galgen, ljóðasafninu, 1983
- Bæsterne, smásagnasafnið, 1986
- Nær afstanden, ljóðasafninu, 1988
- Jonas og konkylien, barnabók, 1994 (illustreret af Mads Stage)
- Forvandlingshavet, ljóðasafninu, 1995
- Jonas og himmelteltet, barnabók, 1998 (illustreret af Mads Stage)
- Alt er en åbning, ljóðasafninu, 2002
- Syd for mit hjerte. 100 udvalgte kærlighedsdigte, ljóðasafninu, 2005
- Europas vestkyst – en fotorejse fra Skagen til Gibraltar, rejsebog, 2008
- Jonas og engletræet, barnabók, 2010 (illustreret af Mads Stage)