Jón Jónsson (tónlistarmaður)
Útlit
Jón Jónsson | |
---|---|
Fæddur | Jón Ragnar Jónsson 30. október 1985 Hafnarfjörður, Ísland |
Störf | Söngvari |
Ár virkur | 2010–í dag |
Ættingjar | Friðrik Dór (bróðir) |
Tónlistarferill | |
Hljóðfæri |
|
Meðlimur í | IceGuys |
Vefsíða | www |
Jón Ragnar Jónsson (f. 30. október 1985) er íslenskur tónlistamaður og fyrrverandi fótboltamaður. Hann hefur gert þrjár plötur, Wait for Fate árið 2011, Heim árið 2014 og Lengi lifum við árið 2021.
Jón hefur tekið þátt í sjónvarpsverkefnum, meðal annars var hann einn dómara í Ísland Got Talent og var með fjölskylduþátt á laugardögum sem hét Fjörskyldan, þar sem fjölskyldur kepptust við aðrar fjölskyldur á árunum 2017-2018. Hann var líka kynnir Söngvakeppninnar 2018.
Árið 2023 stofnaði hann strákahljómsveitina IceGuys.[1]
Æska og menntun
[breyta | breyta frumkóða]Bróðir Jóns er poppsöngvarinn Friðrik Dór. Hann stundaði nám í háskólanum í Boston í fótboltastyrk. Meðan hann var í háskóla stundaði hann leiklist og samdi tónlist.
Útgefið efni
[breyta | breyta frumkóða]Breiðskífur
[breyta | breyta frumkóða]- Wait for Fate (2011)
- Heim (2014)
- Lengi lifum við (2021)
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Einarsdóttir, Júlía Margrét (22. desember 2023). „„Hvað er ég búinn að koma mér út í núna?" - RÚV.is“. RÚV. Sótt 1. janúar 2024.