Jóhann Hollandsprins
Friso Hollandsprins (fæddur Johan Friso Bernhard Christiaan David 25. september 1968, dáinn 12. ágúst 2013), var næstelsti sonur Beatrix Hollandsdrottningar og Claus prins. Hann var áður kallaður Jóhann Friso prins en árið 2004 var tilkynnt að samkvæmt ósk hans sjálfs yrði opinber titill hans Friso prins. Hann hefur frá verið búsettur í London og starfaði þar hjá fjármálafyrirtækjum. Einu og hálfu ári fyrir dauða sinn lenti hann í snjóflóði í svissnesku Ölpunum þar sem hann var á skíðum og komst aldrei til meðvitundar eftir það.
Fjölskylda
[breyta | breyta frumkóða]Þann 25. apríl 2004 giftist Friso konu að nafni Mabel Wisse Smit (f. 11. ágúst 1968). Hún hafði áður átt í sambandi við Klaas Bruinsma, þekktan eiturlyfjabarón í Hollandi. og hafði ekki skýrt hreinskilnislega frá því sambandi. Af þeim sökum taldi hollenska ríkisstjórnin sig ekki geta gefið leyfi fyrir hjónabandinu eins og gera ber þegar um mögulegan erfingja krúnunnar er að ræða. Parið gifti sig samt sem áður, en Friso þurfti að segja af sér tilkalli til krúnunnar. Hann fékk að halda prinstitlinum fyrir sig en kona hans og afkomendur bera ekki konunglega titla. Friso og Mabel eiga tvær dætur:
- Emma Luana Ninette Sophie greifynja (f. 2005)
- Joanna Zaria Nicoline Milou greifynja (f. 2006)
Þann 17. febrúar 2012 varð prinsinn fyrir snjóflóði þar sem hann var á skíðum í Lech í Austurríki. Hann fannst og var bjargað með lífgunartilraunum en komst aldrei til fullrar meðvitundar. Hann lést í Haag þann 12. ágúst 2013.