Ikíngut
Útlit
Ikíngut | |
---|---|
Leikstjóri | Gísli Snær Erlingsson |
Handritshöfundur | Jón Steinar Ragnarsson |
Framleiðandi | Friðrik Þór Friðriksson Hrönn Kristinsdóttir Íslenska kvikmyndasteypan |
Leikarar | |
Frumsýning | 5. janúar, 2001 |
Lengd | 90 mín. |
Tungumál | íslenska |
Aldurstakmark | Leyfð |
Ikíngut er íslensk kvikmynd um vináttu íslensks stráks og grænlensks stráks. Myndin gerist á miðöldum á Íslandi og fjallar um atburð þegar lítill grænlenskur strákur, kallaður Ikíngut, kemur í lítið sjávarþorp á Íslandi með ísjaka. Sjávarþorpið er hjátrúafullt og vegna óvenjulegs útlits Ikíngut telja þorpsbúar hann hafa í sér illa anda.[1] Þegar Ikíngut bjargara íslenskum strák, Bóas, úr snjóflóði verða þeir vinir. Bóas berst gegn mótlætinu sem Ikíngut fær í þorpinu, en þorpsbúar vilja handsama hann og jafnvel drepa hann. Orðið Ikíngut er grænlenskt og merkir "Vinur".[2]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Ikingut (2002), BBC - Films - Reviews, Jamie Russell, 18 March 2002 (Enska)
- Ikingut - "Synopsis", Turner Classic Movies, Access date: 10 May 2022 (Enska)
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Ikingut - 2000, Letterboxd, Access date: 10 May 2022 (Enska)
- ↑ Ikíngut, Nordic Names, (Citation: "Both genders name - Greenlandic name meaning friend.") - submitted by Stine Larsen (Denmark), The Greenland Language Secretariat Oqaasileriffik, Access date: 10 May 2022 (Enska)
Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunni Ikíngut.
Þessi kvikmyndagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.