Hundarós
Útlit
Hundarós | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hundarós í blóma
| ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Rosa canina L. |
Hundarós (fræðiheiti: Rosa canina) er rósategund sem vex í Evrópu, norðvesturhluta Afríku og vesturhluta Asíu. Margir rugla hundarós saman við glitrós.
Hundarós er lauffellandi runni sem venjulega er frá 1-5 metra að hæð en getur verið hærri ef rósin klifrar eftir stofnum stærri trjáa. Stofn rósarinnar er alsettur litlum og beittum þyrnum sem hjálpa rósinni að festa sig og klifra. Blóm eru ljósbleik eða hvít. Þau eru 4-6 sm í þvermál. Hundarós þroskar 1,5-2 sm rauð-appelsínugul aldin.
Ræktun og notkun
[breyta | breyta frumkóða]Hundarós inniheldur mikið af andoxunarefnum. Ávöxturinn inniheldur mikið magn C-vítamína og er notaður við framleiðslu á sýrópi, tei og marmelaði.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Rosa canina.
-
Lauf
-
Blóm
-
Aldin