Hljómsveit Ingimars Eydal - Helena og Þorvaldur
Hljómsveit Ingimars Eydal | |
---|---|
T 108 | |
Flytjandi | Helena og Þorvaldur |
Gefin út | 1969 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Tónaútgáfan |
Hljómsveit Ingimars Eydal - Helena og Þorvaldur er 45-snúninga hljómplata gefin út af Tónaútgáfunni árið 1969. Á henni flytur hljómsveit Ingimars Eydal - Helena og Þorvaldur fjögur lög. Platan er hljóðrituð í mono. Hljóðupptaka: Sjónvarpið, Sigfús Guðmundsson. Ljósmynd: Ljósmyndastofa Páls. Pressun: PYE. Prentun: Valprent h.f. Akureyri.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Ég þrái þig - Lag - texti: Þorvaldur Halldórsson - Birgi Marinósson
- Hvítur stormsveipur - Lag: Finnur Eydal
- Og þó - Lag - texti: Peter Warne og Alan Moorhouse - Þorvaldur Halldórsson
- Til þín - Lag - texti: J. S. Bach - Ásta Sigurdardóttir
Textabrot af bakhlið plötuumslags um lögin
[breyta | breyta frumkóða]HLIÐ A:
Ég þrái þig
Lagið er eftir Þorvald Halldórsson, en textinn eftir Birgi Marinósson og Þorvaldur syngur
Hvítur stormsveipur
Lag eftir Finn Eydal og hann leikur það á klarínettu.
HLIÐ B:
Og þó
Þetta lag er erlent og heitir upphaflega Boom, bang a bang og er eftir Peter Warne og Alan Moorhouse. Íslenska textann gerði Þorvaldur Halldórsson og Helena syngur.
Til þín
Lagið er grundvallað á aríu úr svítu nr 3 í D-dúr eftir J. S. Bach. Textann gerdi Ásta Sigurðardóttir. Helena og Þorvaldur syngja. Einleik á bassa klarínettu leikur Finnur Eydal.