Fara í innihald

Heimssýn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, er þverpólitísk hreyfing þeirra sem eru andvígir því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Hreyfingin var stofnuð 27. júní 2002. Ragnar Arnalds var kjörinn fyrsti formaður hennar og gegndi hann þeirri stöðu þar til 2009. Síðan hafa formenn verið Ásmundur Einar Daðason (2009-2013) og Vigdís Hauksdóttir. Núverandi formaður er Haraldur Ólafsson.

Á heimasíðu Heimssýnar segir að hreyfingin telji „hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.“ Þá kemur fram að í kjölfar stofnfundar hennar árið 2002 hafi eftirfarandi ávarp verið birt í helstu prentmiðlum landsins undirritað af rúmlega eitt hundrað stofnfélögum:

„Íslendingar hafa á tæpri öld fest sig í sessi sem sjálfstæð þjóð með öflugt atvinnu- og menningarlíf þar sem velferð þegnanna er tryggð. Einstakur árangur fámennrar þjóðar væri óhugsandi nema fyrir það afl sem felst í sjálfstæðinu. Við undirrituð leggjum áherslu á vinsamleg samskipti og víðtæka samvinnu við aðrar þjóðir í Evrópu og heiminum öllum en teljum það ekki samrýmast hagsmunum Íslendinga að gerast aðilar að Evrópusambandinu. Við hvetjum til opinnar umræðu um Evrópu- og alþjóðasamstarf á þessum grunni og höfum stofnað samtök sem bera heitið Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum.“