Gunnar Nelson
Gunnar (Lúðvík Haraldsson) Nelson (fæddur 28. júlí 1988)[1] er íslenskur bardagaíþróttamaður. Hann keppir meðal annars í blönduðum bardagaíþróttum (MMA) og hefur unnið 17 bardaga en aðeins tapað þremur. Gunnar er margfaldur Íslandsmeistari í karate og var landsliðsmaður frá fimmtán ára aldri. Hann var valinn efnilegasti karatemaður Íslands sextán ára gamall og hlaut hæsta nýliðastyrk ÍSÍ.[2]
Hann er með svarta beltið í brasilísku jiu jitsu (BBJ), með Renzo Gracie sem þjálfara.[3] Hann hefur unnið silfurverðlaun í millivigt með brúnt belti í Heimsmeistaramótinu í BBJ, [4] gullverðlaun í millivigt með brúnt belti á Pan American meistaramótinu [5] og gullverðlaun í svartbelta flokki á Pan American meistaramótinu í uppgjafarglímu (No-Gi)[6]. Núverandi (2014) þjálfari hans er John Kavannagh í Dublin á Írlandi. Hann hefur tekið þátt í fimmtán atvinnubardögum, unnið fjórtán, gert jafntefli í einum og tapað einum.[7] Á Íslandsmeistaramótinu í BJJ hefur hann unnið tvisvar, bæði í opnum flokki og 82kg- flokki.[7] Á Opna Mjölnismótinu hefur hann unnið fjórum sinnum í opnum flokki, tvisvar í 88kg- flokki og einu sinni bæði í 81kg- flokki og 74kg- flokki.[7]
Faðir Gunnars er ættaður frá Bandaríkjunum í föðurætt sína, en móðirin er íslensk.[8].
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Íslendingabók
- ↑ Keppnislið Mjölnis
- ↑ BBJ Beltatré félagsmanna Mjölnis Mjölnir
- ↑ „Results in IBBJF World Jiu-Jitsu Championship 2009“. Afrit af upprunalegu geymt þann 10. ágúst 2013. Sótt 3. apríl 2011.
- ↑ „Results in IBBJF Pan American Championship“. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. ágúst 2009. Sótt 3. apríl 2011.
- ↑ „Results in IBBJF Pan American No-Gi Championship“. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. október 2009. Sótt 28. júní 2012.
- ↑ 7,0 7,1 7,2 „Gunnar Nelson record“. Afrit af upprunalegu geymt þann 14. mars 2010. Sótt 3. apríl 2011.
- ↑ Minningargrein um Kenneth Dean Nelson. Gagnasafn Morgunblaðsins.